Ludwig Andreas Feuerbach
Útlit
Ludwig Andreas Feuerbach | |
---|---|
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 28. júlí 1804 |
Svæði | Vestræn heimspeki |
Tímabil | Heimspeki 19. aldar |
Skóli/hefð | Ungu hegelistarnir |
Helstu ritverk | Eðli kristninnar |
Helstu kenningar | Eðli kristninnar |
Helstu viðfangsefni | trúarbrögð |
Ludwig Andreas Feuerbach (28. júlí 1804 – 13. september 1872) var þýskur heimspekingur, sem var undir miklum áhrifum frá G.W.F. Hegel. Hann var trúleysingi og hélt því fram að kristnin væri dauð kennisetning. Hann gagnrýndi hughyggju Hegels og var þar með orðinn talsmaður efnishyggju. Kenningar hans ásamt þráttarhyggju Hegels urðu helstu uppsprettur að kenningum Marxs og Engels um sögulega efnishyggju. Hann hafði m.a. áhrif á þýska guðfræðinginn David Friedrich Strauss.
Ævi
[breyta | breyta frumkóða]Ludwing fæddist í Landshut í Bavaríu í Þýskalandi og var sonur Paul Feuerbach, þekkts dómara.
Verk
[breyta | breyta frumkóða]- Das Wesen des Christentums, 1841
- Grundsätze der Philosophie der Zukunft, 1843
- Das Wesen der Religion, 1845
- Vorlesungen über das Wesen der Religion, 1851
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Ludwig Andreas Feuerbach“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 5. apríl 2006.