Jimi Hendrix


James Marshall "Jimi" Hendrix (f. Johnny Allen Hendrix 27. nóvember 1942 í Seattle, d. 18. september 1970 í London) var bandarískur tónlistarmaður. Hann var söngvari, lagasmiður og gítarleikari. Hendrix var þekktur sem einn áhrifamesti gítarleikari rokktónlistarinnar en hann var frumvöðull í að breyta hljóm rafmagnsgítar með bjögun og endurvarpi frá mögnurum. Hann varð heimsfrægur árið 1967 þegar hann spilaði á Monterey-Popphátíðinni.
Hendrix var fyrst gítarleikari hjá hljómsveitum eins og Isley Brother, Little Richard, King Kurtis og fleirum. Seinna byrjaði hann að spila með bandi sem sérhæfði sig í blús, það hét John Hammonds Jr's Band. Það var bassaleikarinn í Animals, Chas Chandler, sem uppgötvaði Hendrix og bauð honum að flytja til London árið 1966 og hefja sólóferil. Í Bretlandi náði Hendrix lögum á topp 10-listann árið 1967 með sveit sinni Jimi Hendrix Experience. Þau voru "Hey Joe," "Purple Haze," and "The Wind Cries Mary". Árið 1969, leysti hann upp JHE og stofnaði Band of Gypsys sem var með meiri fönkáhrifum. [1]
Hendrix lést eftir að hafa tekið inn svefnlyf með sterku áfengi árið 1970, 27 ára gamall. Ýmsar safnplötur og óútgefið efni kom út eftir andlát hans.
Eitt og annað
[breyta | breyta frumkóða]- Árið 2022 fékk Hið íslenzka reðasafn afsteypu af getnaðarlim Hendrix eftir að listakonan, Cynthia Albritton, sem gerði hana lést. [2]
Breiðskífur
[breyta | breyta frumkóða]The Jimi Hendrix Experience
[breyta | breyta frumkóða]- Are You Experienced (1967)
- Axis: Bold as Love (1967)
- Electric Ladyland (1968)
Jimi Hendrix/Band of Gypsys
[breyta | breyta frumkóða]- Band of Gypsys (1970)
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Jimi HendrixAllmusic.com
- ↑ Reðasafnið fær afsteypu af getnaðarlim Jimi Hendrix RÚV, sótt 24. maí 2022