[go: up one dir, main page]

Fara í innihald

Heilsa

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Heilsa er samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar ekki einungis fólgin í að vera sjúkdómalaus heldur í almennri velferð einstaklings, bæði líkamlegri, andlegri og félagslegri.[1] Í gegnum tíðina hefur heilsa verið skilgreind á ýmsa vegu í ýmsum tilgangi. Hægt er að efla heilsuna með því að leggja stund á heilsusamlegar athafnir, eins og að stunda reglulega líkamsrækt og fá nægan svefn.[2] Á sama hátt er hægt að forðast óhollar venjur eða aðstæður, eins og reykingar og streitu. Sumir þættir sem hafa áhrif á heilsuna stafa af vali einstaklinga, meðan aðrir þættir tengjast félagsgerð, eins og því hvort samfélög séu byggð upp þannig að fólk eigi auðvelt með að sækja sér heilbrigðisþjónustu. Aðrir heilsutengdir þættir, eins og erfðaraskanir, standa utan við atbeina einstaklinga og samfélaga.

Neðanmálsgreinar

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Constitution of the World Health Organization“ (PDF). Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 2. júlí 2007. Sótt 2. júlí 2007.
  2. CDC (5. apríl 2021). „Benefits of Physical Activity“. Centers for Disease Control and Prevention (bandarísk enska). Sótt 11. september 2021.
  Þessi heilsugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.