ACID
Útlit
Í tölvunarfræði er ACID skammstöfun á ensku sem vísar til ákveðinna eiginleika hreyfinga í gagnagrunnum. ACID-eiginleikar eru innbyggðir í flesta vinsælustu SQL-venslagagnagrunnana; Oracle, MS SQL, MySQL og PostgreSQL.
ACID eiginleikarnir eru eftirfarandi:
- Eining (e. atomicity) - hver hreyfing framkvæmist í heild sinni eða alls ekki
- Heilleiki (e. consistency) - hver hreyfing er á milli tveggja löglegra ástanda, það er að segja í samræmi við gildandi töfluskema
- Einangrun (e. isolation) - hver hreyfing er sjálfstæð og algerlega óháð öðrum hreyfingum
- Ending (e. durability) - að hreyfingu lokinni vistast áhrif hennar varanlega þrátt fyrir kerfishrun