Gansu
Gansu (kínverska: 甘肃; rómönskun: Gānsù) er landlukt er hérað í norðvestanverðu Kína. Höfuðborg hennar og stærsta borg er Lanzhou, í suðausturhluta héraðsins. Gansu er sjöunda stærsta stjórnsýsluumdæmi Kína að flatarmáli, (453.700 ferkílómetrar).
Héraðið liggur á milli hásléttu Tíbets og Löss-hásléttunnar (stundum kölluð „Gula-framburðarsvæðið“). Það liggur að Mongólíu, Innri Mongólíu og Ningxia í norðri, Xinjiang og Qinghai í vestri , Sichuan í suðri og Shaanxi í austri. Gulafljót (eða Gulá) liggur í gegnum suðurhluta héraðsins. Hluti af hinni miklu Góbíeyðimörk er í Gansu. Í suðri rís Qilian-fjallgarðurinn til norðurs og vesturs.
Gansu telur um um 25 milljónir íbúa. Þeir eru aðallega Han Kínverjar en einnig minnihlutahópar Hui, Dongxiang og Tíbeta. Á stórborgarsvæði höfuðborgarinnar Lanzhou eru um 5,3 milljónir manna.
Héraðið er eitt hið fátækasta í Kína. Hagkerfið byggir að miklu á námuvinnslu steinefna, sérstaklega sjaldgæfra jarðefna. Þá er ferðaþjónusta héraðinu mikilvæg enda á Qin-ríki uppruna sinn í því sem nú er suðaustur af Gansu og myndaði það fyrsta þekkta keisaradæmi Kína. Þá lá Norðursilkivegurinn forðum um Gansu.
Tenglar
breyta- Enskur vefur héraðsstjórnar Gansu. Geymt 13 janúar 2021 í Wayback Machine Inniheldur ýmsar upplýsingar t.d. um sögu, skipulag, fréttir og ferðaþjónustu
- Vefur Britannica um Gansu. Inniheldur ýmsar upplýsingar um héraðið t.d. sögu, landslag, skipulag og markverða staði]
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Gansu“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 11. janúar 2021.
- Blaðagrein um Silkiveginn og Gansu hérað í Morgunblaðinu, sunnudag 7. október 1990.
Tilvísanir
breyta