2008
ár
2008 (MMVIII í rómverskum tölum) var 8. ár 21. aldar og hlaupár sem hófst á þriðjudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu.
Árþúsund: | 3. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
Atburðir
breyta- Öll íslensk sveitarfélög áttu að vera komin með aðalskipulag yfir allt land sveitarfélagsins árið 2008, en minnihluti þeirra stóðst þá kröfu.[1]
Janúar
breyta- 1. janúar - Kýpur og Malta tóku upp evruna.
- 1. janúar - NordGen var stofnað og tók meðal annars við starfsemi Norræna genabankans.
- 3. janúar - Verð hráolíu fór í fyrsta sinn í sögunni yfir 100 dali á tunnuna.
- 3. janúar - 4 létust í öflugri bílsprengju í bænum Diyarbakir í Tyrklandi.
- 4. janúar - Dakarrallinu var aflýst vegna óróleika í Máritaníu.
- 8. janúar - Á aðeins þremur viðskiptadögum höfðu íslensk hlutabréf fallið um 10,53%, þar af Exista og SPRON hvað mest.[2]
- 14. janúar - Geimkönnunarfarið MESSENGER flaug næst Merkúr í fyrsta framhjáflugi sínu.
- 14. janúar - 20 létust í árás Ísraelshers á Gasaströndina.
- 18. janúar - Íslenska kvikmyndin Brúðguminn var frumsýnd.
- 18. janúar - 66 létust í óeirðum vegna trúarhátíðar sjíamúslima, ashar, í bæjunum Basra og Nassiriya í Írak.
- 20. janúar - Francis Joyon setti heimsmet í því að sigla einsamall á seglbát umhverfis jörðina eftir 57 daga siglingu og bætti fyrra met um fjórtán daga.
- 21. janúar - Ólafur F. Magnússon, oddviti Frjálslynda flokksins, myndaði nýjan meirihluta með Sjálfstæðisflokki í borgarstjórn Reykjavíkur.
- 21. janúar - Alþjóðlega fjármálakreppan 2007-2008: Hrun varð á hlutabréfamörkuðum um allan heim vegna Undirmálslánakreppunnar í Bandaríkjunum.
- 23. janúar - Palestínumenn sprengdu gat á landamæramúr við landamæri Egyptalands. Fjöldi fólks flykktist í gegn til að kaupa mat og aðrar nauðsynjar.
- 24. janúar - Ólafur F. Magnússon var kjörinn nýr borgarstjóri Reykjavíkur á borgarstjórnarfundi og tók við af Degi B. Eggertssyni.
- 24. janúar - Friðarsamkomulag í Kivudeilunni í Kongó var undirritað.
- 24. janúar - Romano Prodi sagði af sér embætti forsætisráðherra Ítalíu.
- 28. janúar - Jafnréttindafélag Íslands var stofnað.
- 30. janúar - Yfir 100 fórust þegar ferja sökk á Tanganjikavatni.
Febrúar
breyta- 2. febrúar - Borgarastyrjöldin í Tjad (2005-2010): Uppreisnarmenn náðu höfuðborginni N'Djamena á sitt vald.
- 2. febrúar - Samkomulag náðist milli stjórnar og stjórnarandstöðu í Kenýa. Þá höfðu yfir 1000 fallið í átökum eftir kosningarnar í desember 2007.
- 4. febrúar - Íran vígði sína fyrstu geimrannsóknarstöð og skaut eldflaug út í geim.
- 7. febrúar - 7 létust í innrás Ísraelshers á Gasaströndina.
- 10. febrúar - Fyrsta Þjóðargersemi Suður-Kóreu, borgarhliðið Namdaemun í Seúl, brann.
- 11. febrúar - Turninn Smáratorgi var opnaður í Kópavogi.
- 11. febrúar - Hópur herforingja reyndi að gera stjórnarbyltingu á Austur-Tímor. Forsetinn, José Ramos-Horta, særðist illa.
- 12. febrúar - Einn leiðtoga Hezbollah, Imad Mugniyah, var myrtur með bílsprengju í Damaskus.
- 13. febrúar - Forsætisráðherra Ástralíu Kevin Rudd bað Stolnu kynslóðirnar formlega afsökunar.
- 17. febrúar - Kosóvó lýsti yfir sjálfstæði frá Serbíu.
- 17. febrúar - Yfir 100 létust í hryðjuverkaárásum í Kandahar í Afganistan.
- 19. febrúar - Fidel Castro Kúbuleiðtogi tilkynnti að hann myndi láta af embætti þann 24. febrúar.
- 21. febrúar - Hundruð þúsunda mótmæltu sjálfstæðisyfirlýsingu Kosóvó í Belgrad.
- 21. febrúar - Mesti jarðskjálfti sem mælst hefur í Noregi átti sér stað við Svalbarða. Hann var 6,2 á Richter.
- 22. febrúar - Breski bankinn Northern Rock var þjóðnýttur af bresku ríkisstjórninni.
- 22. febrúar - 10.000 tyrkneskir hermenn réðust inn í Íraska Kúrdistan til að berjast gegn skæruliðum Verkamannaflokks Kúrdistan.
- 23. febrúar - Eurobandið (Friðrik Ómar og Regína Ósk) sigraði Söngvakeppni Sjónvarpssins með laginu „This is my life”
- 24. febrúar - Raúl Castro tók við stjórn Kúbu eftir afsögn bróður síns, Fidel Castro.
- 28. febrúar - Dímítrís Krístofías tók við af Tassos Papaðopúlos sem forseti Kýpur.
- 29. febrúar - Íbúar Hafnarfjarðar urðu 25.000 talsins í fyrsta sinn.
Mars
breyta- 1. mars - 60 Palestínumenn á Gasaströndinni féllu í sprengjuárásum Ísraelshers.
- 2. mars - Dmítríj Medvedev var kjörinn forseti Rússlands með 68% atkvæða.
- 2. mars - Heimastjórn Palestínumanna sleit stjórnmálasambandi við Ísrael.
- 2. mars - Her Kólumbíu elti skæruliða FARC inn í Ekvador og drap einn foringja þeirra, Raúl Reyes. Í kjölfarið slitu Ekvador og Venesúela stjórnmálasamband við Kólumbíu.
- 6. mars - Palestínumaður hóf skothríð í skóla í Jerúsalem og myrti 8 nemendur.
- 6. mars - Heimsmarkaðsverð á olíu náði hápunkti, 105,96 dalir fatið, á bandaríska hrávörumarkaðnum.
- 6. mars - 54 létu lífið í bílasprengjuárás í Bagdad.
- 8. mars - Hljómsveitin Jakobínarína hélt sína síðustu tónleika á Organ.
- 9. mars - Evrópska geimferðastofnunin sendi fyrsta ómannaða flutningafarið með varning til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar.
- 13. mars - Hannes Hólmsteinn Gissurarson var í hæstarétti dæmdur til að greiða Auði Laxness eina og hálfa milljón í skaðabætur vegna ritstuldar í ævisögu Laxness.
- 14. mars - Kínastjórn barði með hörku niður mótmæli búddamunka í Tíbet á afmæli hernáms Kínverja í Tíbet. 19 dóu og 600 særðust.
- 15. mars - 60 létust þegar vopnageymsla í Gërdec í nágrenni Tírana í Albaníu sprakk.
- 17. mars - Gengisvísitala íslensku krónunnar féll um 6,97%. Var það mesta lækkun hennar á einum degi í sögu hennar, fram að því.
- 24. mars - Bútan hélt fyrstu almennu kosningarnar í sögu landsins.
- 25. mars - Her Afríkubandalagsins réðist á eyjuna Anjouan sem var í höndum skæruliða og lagði hana aftur undir stjórn Kómoreyja.
- 27. mars - Mótmæli vörubílstjóra á Íslandi 2008 hófust með því að hópur bílstjóra lagði bílum sínum í Ártúnsbrekkunni í Reykjavík og stöðvaði þannig alla umferð.
- 27. mars - Fjöldi greina á Wikipediu náði 10 milljónum.
- 28. mars - Íslenska kvikmyndin Stóra planið var frumsýnd.
Apríl
breyta- 1. apríl - Stærsta rán í sögu Danmerkur var framið í peningageymslu í Glostrup. Ræningjarnir komust undan með 62 milljónir.
- 3. apríl - Fyrrum forsætisráðherra Kosóvó, Ramush Haradinaj, var sýknaður af ákærum um stríðsglæpi gegn serbneskum íbúum Kosóvó fyrir Alþjóðlega stríðsglæpadómstólnum fyrir fyrrum Júgóslavíu. Mörg vitni gegn honum höfðu verið myrt eða horfið í aðdraganda réttarhaldanna.
- 4. apríl - Franska seglskipinu Le Ponant var rænt af sjóræningjum við strönd Sómalíu með 30 farþega um borð.
- 5. apríl - Mótmæli gegn hernámi Kína í Tíbet áttu sér stað þar sem Ólympíukyndillinn var borinn um stræti London.
- 6. apríl - Samgönguráðherra Srí Lanka, Jeyaraj Fernandopulle, lést ásamt 11 öðrum í hryðjuverkaárás í Kólombó.
- 10. apríl - Í Nepal fóru fram kosningar til stjórnlagaþings til að semja nýja lýðveldisstjórnarskrá.
- 11. apríl - Nintendo gaf út leikinn Mario Kart Wii.
- 14. apríl - Bandalag hægriflokka undir forystu Silvio Berlusconi vann sigur í þingkosningum á Ítalíu.
- 15. apríl - 65 létust í hryðjuverkaárásum í Baquba og Ramadi í Írak.
- 20. apríl - Benedikt 16. páfi heimsótti Ground Zero í New York-borg.
- 22. apríl - Læknar við Moorfields Eye Hospital í London græddu í fyrsta sinn gerviaugu í tvo blinda sjúklinga.
- 23. apríl - Mótmæli vörubílstjóra á Íslandi 2008 héldu áfram. Lögreglan var vopnuð óeirðabúnaði, t.d. múgskjöldum og piparúða og beitti gegn mótmælendum.
- 28. apríl - Indland setti nýtt heimsmet með því að senda 10 gervihnetti á sporbaug um jörðu í einu geimskoti.
- 28. apríl - Austurríkismaðurinn Josef Fritzl játaði að hafa haldið dóttur sinni fanginni í 24 ár og átt 7 börn með henni.
Maí
breyta- 3. maí - Yfir 133 þúsund manns létust af völdum fellibyls í Mjanmar.
- 3. maí - Íhaldsmenn unnu stórsigur í sveitarstjórnarkosningum í Bretlandi. Boris Johnson varð borgarstjóri London.
- 6. maí - Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti að selja Fríkirkjuveg 11 til Novator.
- 7. maí - Dmítríj Medvedev tók við embætti forseta Rússlands af Vladímír Pútín.
- 10. maí - Skæruliðahreyfingin Réttlætis- og jafnréttishreyfingin reyndi að leggja höfuðborg Súdan undir sig.
- 12. maí - Jarðskjálftinn í Sesúan 2008 olli yfir 69 þúsund dauðsföllum í Kína.
- 13. maí - 80 létust í sprengjuárás í Jaípúr á Indlandi.
- 14. maí - 20 létust í sprengjutilræði við jarðarför í Abu Minasir í Írak.
- 22. maí - Eurobandið (Friðrik Ómar og Regína Ósk) komst áfram í úrslit með lagið „This is my life” í Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva sem haldin var í Belgrade í Serbíu.
- 24. maí - Úrslitakeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2008 var haldin í Belgrad í Serbíu. Dima Bilan sigraði fyrir Rússland með laginu „Believe“.
- 25. maí - Knattspyrnufélagið Valur vígði Vodafonevöllinn við Hlíðarenda.
- 25. maí - Bandaríska geimfarið Phoenix lenti á norðurpólssvæði Mars.
- 26. maí - Yfir 200 fórust í flóðum í Kína.
- 27. maí - Arctic Ocean Conference var haldin í Ilulissat á Grænlandi.
- 28. maí - Nepalska þingið breytti landinu úr konungsríki í lýðveldi og batt þannig enda á aldalangt einræði.
- 29. maí - Jarðskjálfti varð á Suðurlandi klukkan 15:46. Skjálftinn mælist 6,2 stig á Richter-kvarða og olli töluverðu tjóni, mest á Selfossi.
- 30. maí - Fulltrúar 111 landa undirrituðu alþjóðasamning um bann við klasasprengjum.
- 31. maí - Geimskutlan Discovery flutti japanska rannsóknarstöð til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar.
Júní
breyta- Íslenska fjármálafyrirtækið Gamma var stofnað.
- 1. júní - Íslenska landsliðið í handbolta sigraði Svía 29-25 og komst þar með á Ólympíuleikana í Peking.
- 1. júní - Alberto Contador sigraði hjólreiðakeppnina Giro d'Italia.
- 2. júní - Jarðskjálfti skók Hveragerði. Skjálftinn mældist 5,5 stig á Richter-kvarða.
- 2. júní - Jose Mourinho var ráðinn nýr þjálfari F.C. Internazionale Milano og fékk rúman milljarð íslenskra króna í árslaun eftir samkomulagi.
- 2. júní - 6 létust í sprengjuárás á danska sendiráðið í Islamabad.
- 2. júní - Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti heimild fyrir erlend herskip að fara inn í lögsögu Sómalíu til að koma í veg fyrir sjórán.
- 3. júní - Hvítabjörn sást á Þverárfjalli í Skagafirði og var felldur.
- 7. júní - Evrópukeppnin í knattspyrnu 2008 hófst í Austurríki og Sviss.
- 8. júní - Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður á Íslandi.
- 11. júní - Fermi-gammageislageimsjónaukanum var skotið á braut um jörðu.
- 11. júní - Norska stórþingið samþykkti lög um hjónabönd samkynhneigðra.
- 11. júní - Stephen Harper forsætisráðherra Kanada baðst formlega afsökunar á heimavistarskólum indíána í Kanada.
- 12. júní - Írar höfnuðu Lissabonsáttmálanum í þjóðaratkvæðagreiðslu.
- 14. júní - Heimssýningin Expo 2008 var opnuð í Zaragoza á Spáni.
- 17. júní - Hvítabjörn var skotinn á Skaga, eftir að tilraunir til að svæfa hann með deyfilyfjum misheppnuðust.
- 21. júní - Filippeysku farþegaferjunni Princess of the Stars hvolfdi með þeim afleiðingum að 800 fórust.
- 27. júní - Bill Gates hætti sem stjórnarformaður Microsoft Corporation.
- 29. júní - Spánn sigraði Evrópukeppnina í knattspyrnu 2008 með 1-0 sigri á Þýskalandi.
Júlí
breyta- 1. júlí - Hitaveitu Suðurnesja var skipt upp í HS Orku og HS Veitur.
- 1. júlí - Tækniskólinn var stofnaður í Reykjavík með sameiningu Fjöltækniskólans og Iðnskólans í Reykjavík
- 1. júlí - Kennaraháskóli Íslands varð Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
- 2. júlí - Íngrid Betancourt og 14 öðrum gíslum var sleppt úr haldi FARC í Kólumbíu eftir sex ár í haldi.
- 4. júlí. Hörður Torfason hóf mótmæli fyrir framan Menntamáluráðuneytið í Skuggasundi vegna brottvísunar Paul Ramses.
- 7. júlí - Fundur átta helstu iðnríkja heims hófst á Hokkaídó í Japan.
- 8. júlí - Surtsey var skráð inn í heimsminjaskrá UNESCO.
- 11. júlí - iPhone kom á markað í 22 löndum.
- 21. júlí - Radovan Karadžić, einn eftirlýstasti stríðsglæpamaður heims var handtekinn í Belgrad eftir 12 ára leit.
- 24. júlí - Bandaríska kvikmyndin The Dark Knight var frumsýnd.
Ágúst
breyta- 1. ágúst - George Tupou 5. var krýndur konungur Tonga.
- 1. ágúst - Ellefu fjallgöngumenn fórust í hlíðum K2, næsthæsta fjalls heims, í mannskæðasta slysi í sögu fjallsins.
- 6. ágúst - Sidi Ould Cheikh Abdallahi var steypt af stóli í Máritaníu.
- 7. ágúst - Georgíumenn og Rússar hófu stríð um yfirráð í Suður-Ossetíu.
- 8. ágúst - Sumarólympíuleikarnir 2008 voru settir í Beijing.
- 8. ágúst - Kvikmyndin Skrapp út var frumsýnd.
- 18. ágúst - Pervez Musharraf sagði af sér sem forseti Pakistan.
- 18. ágúst - Andarnefjur sáust á Pollinum á Akureyri og voru í meira en mánuð. Flestar voru þær fjórar.
- 19. ágúst - Rauðhumla sást í fyrsta sinn á Íslandi.
- 20. ágúst - 154 manns fórust í flugslysi í Madrid.
- 21. ágúst - Hanna Birna Kristjánsdóttir tók við af Ólafi F. Magnússyni sem borgarstjóri Reykjavíkur.
- 22. ágúst - Ísland sigraði Spán í undanúrslitum Ólympíuleikanna í handknattleik karla 36-30 og mætti því Frökkum í úrslitaleik um gullið.
- 22. ágúst - Fyrsti þjóðgarður Danmerkur, Nationalpark Thy, var formlega opnaður.
- 24. ágúst - Ísland vann silfurverðlaun í handknattleik karla á Ólympíuleikunum í Peking. Þetta var talinn einn stærsti íþróttaviðburður í íslenskri íþróttasögu.
- 24. ágúst - Danmarks Nationalbank tók yfir rekstur Roskilde Bank.
- 25. ágúst - 68 fórust þegar flugvél frá Iran Aseman Airlines hrapaði í Kirgistan.
- 26. ágúst - Dmítrí Medvedev, Rússlandsforseti, viðurkenndi sjálfstæði Suður-Ossetíu og Abkasíu, en aðeins eitt annað ríki hafði þá gert hið sama.
- 27. ágúst - Íslenska karlalandsliðið í handknattleik var hyllt af miklum mannfjölda í miðbæ Reykjavíkur eftir komuna til landsins.
- 29. ágúst - Íslenska kvikmyndin Sveitabrúðkaup var frumsýnd.
- 31. ágúst - Mest lesna dagblað Danmerkur, Nyhedsavisen, hætti útgáfu.
- 31. ágúst - Bill Gates hætti störfum sem forstjóri Microsoft.
September
breyta- 1. september - Íslenska útvarpsstöðin K100 hóf útsendingar.
- 2. september - Fyrsta útgáfa vafrans Google Chrome kom út.
- 2. september - Fyrsti þáttur 90210 var sýndur á bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS.
- 7. september - Bandaríkjastjórn tók yfir stjórn lánasjóðanna Fannie Mae og Freddie Mac.
- 8. september - Skriðan í Shanxi 2008: 277 fórust þegar landfylling frá námu skreið fram í Shanxi-héraði í Kína.
- 10. september - Róteindageislinn í Stóra sterkeindahraðlinum í CERN í Genf var settur af stað.
- 12. september - Slavonic Channel International hóf útsendingar.
- 14. september - Fyrsta bókin í bókaröðinni um Hungurleikana kom út í Bandaríkjunum.
- 15. september - Lehman Brothers, eitt stærsta fjármálafyrirtæki í heimi, varð gjaldþrota.
- 15. september - Stjórnarandstöðuleiðtoginn Morgan Tsvangirai var skipaður forsætisráðherra í Simbabve í kjölfar samkomulags við Robert Mugabe.
- 20. september - 60 létust í sjálfsmorðssprengjuárás á Hotel Marriott í Islamabad í Pakistan.
- 22. september - Al Thani-málið: Félag í eigu Mohammad Bin Khalifa Al-Thani var sagt hafa keypt 5,01% hlut í Kaupþingi.
- 23. september - 11 létust í skotárás á skóla í Kauhajoki í Finnlandi.
- 25. september - Kínversku mönnuðu geimflauginni Shenzhou 7 var skotið á loft.
- 27. september - Kínverski geimfarinn Zhai Zhi Gang fór fyrstur Kínverja í geimgöngu.
- 28. september - Eldflaugin Falcon 1 frá SpaceX var fyrsta geimfar einkaaðila sem náði á sporbaug um jörðu.
- 26. september - Bandaríska fjármálafyrirtækið Washinton Mutual varð gjaldþrota.
- 29. september - Í kjölfar hruns Lehman Brothers og Washington Mutual féll Dow Jones-vísitalan um 777.68 punkta sem var mesta fall á einum degi í sögu vísitölunnar.
- 29. september - Bankahrunið á Íslandi: Íslenska ríkið greiddi 600 milljónir evra fyrir 75% hlut í Glitni banka hf.[3] [4]
Október
breyta- 3. október - Íslenska kvikmyndin Reykjavík - Rotterdam var frumsýnd.
- 3. október - Bandaríkjaforseti undirritaði lög um 700 milljarða dala ríkissjóð til að kaupa eignir gjaldþrota banka.
- 6. október - Bankahrunið á Íslandi: Fjármálaeftirlitið ákvað að stöðva tímabundið viðskipti með alla fjármálagerninga sem gefnir höfðu verið út af Glitni banka hf., Kaupþingi banka hf., Landsbanka Íslands hf., Straumi-Burðarási fjárfestingarbanka hf., Spron hf. og Exista hf., og teknir höfðu verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði.[5]
- 6. október - Bankahrunið á Íslandi: Geir Haarde forsætisráðherra Íslands flutti sjónvarpsávarp þar sem hann bað Guð að blessa Ísland.
- 6. október - Geimkönnunarfarið MESSENGER flaug framhjá Merkúr í annað sinn.
- 7. október - Bankahrunið á Íslandi: Fjármálaeftirlitið skipaði skilanefnd sem tók við öllum heimildum stjórnar Landsbankans.[6]
- 7. október - Bankahrunið á Íslandi: Rússland bauðst til að veita Íslandi lánafyrirgreiðslu að upphæð 4 milljarðar evra.[7] [8]
- 7. október - Bankahrunið á Íslandi: Davíð Oddson kom fram í Kastljósi og sagði „Við ætlum ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna“.[9]
- 8. október - Bankahrunið á Íslandi: Kaupthing Singer & Friedlander var sett í greiðslustöðvun af breska fjármálaeftirlitinu.
- 8. október - Íþróttafélagið Draupnir var stofnað á Akureyri.
- 9. október - Bankahrunið á Íslandi: Kaupþing banki var þjóðnýttur af íslenska ríkinu og skilanefnd sett yfir hann.
- 11. október - Bankahrunið á Íslandi: Fyrstu mótmælin í búsáhaldabyltingunni fóru fram á Austurvelli.
- 21. október - Stóri sterkeindahraðallinn í Genf var formlega tekinn í notkun.
- 22. október - Geimvísindastofnun Indlands sendi könnunarfarið Chandrayaan-1 til Tunglsins.
- 26. október - Átökin í Kivu í Kongó blossuðu upp á ný.
- 29. október - Danska flugfélagið Sterling Airways varð gjaldþrota.
- 30. október - Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu sigraði það írska 3-0 á Laugardalsvelli og komst þar með í úrslitakeppni EM 2009, fyrst íslenskra A-landsliða í knattspyrnu.
- 30. október - Síðasti bjórinn var bruggaður í verksmiðju Carlsberg í Valby.
- 31. október - James Bond-myndin Quantum of Solace var frumsýnd.
Nóvember
breyta- 4. nóvember - Barack Obama var kosinn forseti Bandaríkjanna. [10]
- 6. nóvember - Jigme Khesar Namgyal Wangchuk var krýndur konungur Bútan.
- 10. nóvember - Bjarni Harðarson þingmaður Framsóknarflokksins sendi óvart tölvupóst á fjölmiðla með harðri gagnrýni á Valgerði Sverrisdóttur og sagði af sér þingmennsku í kjölfarið.
- 12. nóvember - Ljósmyndir náðust af fjarreikistjörnum í fyrsta sinn.
- 15. nóvember - Búsáhaldabyltingin: Að minnsta kosti sjö þúsund manns mótmæltu við Austurvöll vegna efnahagskreppunnar.
- 15. nóvember - Fundur 20 helstu iðnríkja heims var haldinn í Washington til að takast á við alþjóðlegu fjármálakreppuna.
- 15. nóvember - Sómalskir sjóræningjar náðu sádíarabíska risatankskipinu Sirius Star á sitt vald.
- 19. nóvember - Claudia Castillo frá Spáni varð fyrst til að fá græddan í sig barka gerðan með vefjatækni.
- 20. nóvember - Sænska þingið samþykkti Lissabonsáttmálann.
- 22. nóvember - Búsáhaldabyltingin: Eftir að á bilinu 9-11.000 manns mótmæltu ríkisstjórninni friðsamlega á Austurvelli, mótmælti nokkur hundruð manna hópur því fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötu, að mótmælandi hafði verið tekinn fastur kvöldið áður. Mótmælin fóru úr böndunum, mótmælendur reyndu að ryðja sér leið inn í lögreglustöðina en voru stöðvaðir með piparúða. Fimm þurftu að leita sér aðhlynningar á slysavarðstofu og erlendis var fjallað um atburðinn eins og óeirðir.
- 24. nóvember - Um 10.000 mótmælendur kröfðust afsagnar forsætisráðherra Taílands, Somchai Wongsawats, í Bangkok.
- 25. nóvember - Grænland hélt þjóðaratkvæðagreiðslu um aukna sjálfsstjórn landsins. Yfir 75% kjósenda greiddu atkvæði með aukinni sjálfsstjórn.
- 26. nóvember - Meðlimir íslömsku öfgasamtakanna Lashkar-e-Taiba hófu fjögurra daga herferð skot- og sprengjuárása í Mumbai sem leiddu 164 til dauða.
- 30. nóvember - 300 létust í átökum kristinna og múslima í Nígeríu.
Desember
breyta- 1. desember - Barack Obama skipaði höfuðkeppinaut sinn, Hillary Clinton, utanríkisráðherra.
- 4. desember - Kólerufaraldur olli dauða 1200 manns í Simbabve.
- 6. desember - Óeirðir hófust í Grikklandi eftir að gríska lögreglan skaut 15 ára ungling til bana.
- 7. desember - Danski athafnamaðurinn Stein Bagger gaf sig fram við lögreglu eftir að hafa verið eftirlýstur af Interpol.
- 10. desember - Fyrstu lýðræðislegu kosningarnar voru haldnar á krúnunýlendunni Sark sem varð þar með síðasta svæðið í Evrópu þar sem lénskerfi var lagt niður.
- 12. desember - Sviss gekk í Schengen.
- 16. desember - Jarðskjálfti upp á 4,2 á Richter reið yfir Eyrarsund.
- 18. desember - Óeirðir brutust út í Rosengård í Malmö þegar húsnæði sem notað hafði verið undir mosku var lokað.
- 18. desember - Alþjóðlegi stríðsglæpadómstóllinn fyrir Rúanda dæmdi Théoneste Bagosora og tvo aðra herforingja í lífstíðarfangelsi fyrir þjóðarmorð.
- 20. desember - Kaffismiðja Íslands var opnuð við Kárastíg í Reykjavík.
- 23. desember - Herinn rændi völdum í Gíneu skömmu eftir andlát forsetans Lansana Conté.
- 27. desember - Ísraelsher hóf árásir á Gasaströndina. Yfir 1300 manns létu lífið í átökunum.
Ódagsettir atburðir
breyta- Stjórnmálahreyfingin Rauður vettvangur var stofnuð á Íslandi.
- Bandaríska fyrirtækið Airbnb var stofnað.
- Íslenska fyrirtækið Reykjavik Geothermal ehf. var stofnað.
- Fyrsta bókin um Maxímús Músíkús kom út á Íslandi.
- Breska hljómsveitin Asking Alexandria var stofnuð.
- Íslenska fyrirtækið Murr ehf var stofnað á Súðavík.
- Íslenski aðgerðahópurinn Raddir fólksins var stofnaður.
- Íslenska fyrirtækið DataMarket ehf var stofnað.
Dáin
breyta- 8. janúar - Bjarni Jónsson, íslenskur listmálari (f. 1934).
- 11. janúar - Edmund Hillary, nýsjálenskur landkönnuður (f. 1919).
- 17. janúar - Bobby Fischer, bandarískur skákmaður (f. 1943).
- 22. janúar - Heath Ledger, ástralskur leikari (f. 1979).
- 27. janúar - Suharto, forseti Indónesíu (f. 1921).
- 2. febrúar - Joshua Lederberg, bandarískur sameindalíffræðingur (f. 1925).
- 10. febrúar - Roy Scheider, bandarískur leikari (f. 1932).
- 23. febrúar - Janez Drnovšek, forseti Slóveníu (f. 1950).
- 24. febrúar - Larry Norman, bandarískur tónlistarmaður (f. 1947).
- 19. mars - Arthur C. Clarke, enskur rithöfundur (f. 1917).
- 19. mars - Hugo Claus, rithöfundur (f. 1929).
- 24. mars - Richard Widmark, bandarískur leikari (f. 1914).
- 27. mars - Ólafur Ragnarsson, íslenskur ritstjóri (f. 1944).
- 27. mars - Bolli Gústavsson, íslenskur prestur (f. 1935).
- 5. apríl – Charlton Heston, bandarískur leikari (f. 1923).
- 23. apríl - Elsa G. Vilmundardóttir, íslenskur jarðfræðingur (f. 1932).
- 18. maí - Jonathan James, bandarískur hakkari (f. 1983).
- 16. júní - Ágúst George, hollenskur prestur (f. 1928).
- 22. júní - George Carlin, bandarískur leikari (f. 1937).
- 5. júlí - René Harris, nárúskur stjórnmálamaður (f. 1948).
- 12. júlí - Egill Jónsson, bóndi og alþingismaður (f. 1930).
- 25. júlí - Randy Pausch, bandarískur tölvunarfræðingur (f. 1960).
- 3. ágúst - Aleksandr Solzhenitsyn, rússneskur rithöfundur (f. 1918).
- 9. ágúst - Bernie Mac, bandarískur leikari (f. 1957).
- 10. ágúst – Isaac Hayes, bandarískur tónlistarmaður (f. 1942).
- 19. ágúst - Levy Mwanawasa, forseti Sambíu (f. 1948).
- 28. ágúst - Sigurbjörn Einarsson, biskup íslensku Þjóðkirkjunnar 1959-1981 (f. 1911).
- 26. september - Paul Newman, bandarískur leikari (f. 1925).
- 29. september - Luis de Souza, perúskur knattspyrnumaður (f. 1908).
- 9. nóvember - Úlfur Hjörvar, íslenskur rithöfundur og þýðandi (f. 1935).
- 10. nóvember – Miriam Makeba, suður-afrísk söngkona (f. 1932).
- 29. nóvember - Jørn Utzon, danskur arkitekt (f. 1918).
- 2. desember - H.M., bandarískur heilasjúklingur (f. 1926).
- 5. desember - Rúnar Júlíusson, íslenskur tónlistarmaður og útgefandi (f. 1945).
- 15. desember - Anne-Cath.Vestly, norskur barnabókahöfundur (f. 1920).
- 24. desember - Harold Pinter, breskt leikskáld (f. 1930).
- 29. desember - Freysteinn Sigurðsson, íslenskur jarðfræðingur (f. 1941).
- Eðlisfræði – Makoto Kobayashi, Toshihide Maskawa, Yoichiro Nambu.
- Efnafræði - Martin Chalfie, Osamu Shimomura, Roger Y. Tsien.
- Lífeðlis- og læknisfræði - Françoise Barré-Sinoussi, Harald zur Hausen, Luc Montagnier.
- Bókmenntir - Jean-Marie Gustave Le Clézio.
- Friðarverðlaun - Martti Ahtisaari.
- Hagfræði - Paul Krugman.
Heimildir
breyta- ↑ „Staða aðalskipulags“. Sótt 7. júlí 2006.
- ↑ „Gustar um hlutabréfamarkaðinn“. Sótt 7.8. janúar 2008.
- ↑ Glitnir, Um Glitni, Fréttir: 29.09.2008, Íslenska ríkið kaupir 75 prósent hlut í Glitni
- ↑ Forsætisráðuneytið, Fréttir: Samkomulag um að ríkissjóður leggi Glitni til nýtt hlutafé (29.9.2008)
- ↑ „Fjármálaeftirlitið, Fréttir: Tímabundin stöðvun viðskipta (06.10.2008)“. Afrit af upprunalegu geymt þann 12. júlí 2011. Sótt 6. október 2008.
- ↑ „Fjármálaeftirlitið, Fréttir: Á grundvelli nýsettra laga grípur Fjármáleftirlitið inn í rekstur Landsbankans til að tryggja áframhaldandi viðskiptabankastarfsemi á Íslandi (07.10.2008)“. Afrit af upprunalegu geymt þann 14. október 2008. Sótt 7. október 2008.
- ↑ „Seðlabanki Íslands, Efling gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands (07. Október 2008; Nr. 33/2008)“. Afrit af upprunalegu geymt þann 8. október 2013. Sótt 7. október 2008.
- ↑ „Seðlabanki Íslands, Efling gjaldeyrisforðans (07. október 2008; Nr. 35/2008)“. Afrit af upprunalegu geymt þann 8. október 2013. Sótt 7. október 2008.
- ↑ RÚV, Borgum ekki annarra manna skuldir (07.10.2008).
- ↑ Mbl.is Obama kjörinn forseti (5. nóvember 2008)